Skilmálar

Samtíningur ehf áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis.


Afhending vöru

Reynt er að afgreiða allar pantanir samdægurs eða næsta virka dag eftir pöntun. Sé varan ekki til á lager mun þjónustufulltrúi hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar. Af öllum pöntunum dreift af Íslandspósti gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar. Samtíningur ehf ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á týndum sendingum eða tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Ef að vara týnist í pósti eða verður fyrir tjóni frá því að að hún er send frá Samtíning ehf til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda. Pantanir sendar með Íslandspósti eru tryggðar með lágmarkstryggingu frá Íslandspósti, nánar á heimasíðu Íslandspósts www.postur.is. Kaupandi skal við móttöku vöru athuga án tafar og innan eðlilegra tímamarka hvort varan sé í samræmi við pöntunarstaðfestingu. Kaupandi getur einnig valið að sækja vöruna á lager í samráði við seljanda, vinsamlegast hafið samband í þeim tilfellum.


Verð á vöru og sendingakostnaður

Öll verð í vefverslun eru með inniföldum 24% vsk en sendingakostnaður bætist síðan við áður en greiðsla fer fram. Við bjóðum uppá fría heimsendingu innan stór Hafnarfjarðarsvæðisins. Sendingakostnaður reiknast þegar gengið er frá pöntun. Alla jafna ef verslað er fyrir 29.900,- eða meira þá fellur sendingarkostnaðurinn niður. Við sendum vörur með Íslandspósti á það pósthús sem er næst kaupanda.  Það verð gildir er fram kemur á pöntunarstaðfestingu kaupanda hverju sinni.
Seljandi áskilur sér rétt til að fella niður pantanir t.d. vegna rangra verðupplýsinga og breyta verði á vöru án fyrirvara en verð eru almennt breytileg t.d. vegna samkeppni og verðbreytinga birgja. Verði seljandi fyrir óviðráðanlegu ytra atviki (force majeure), svo sem eldgosi, jarðskjálfta, verkfalli eða þess um líkt, er seljanda heimilt að fresta efndum sínum eða falla frá kaupunum.

Að skipta og skila vöru

Veittur er 14 daga skilaréttur við kaup á vöru gegn því að framvísað sé sölureikningi sem sýnir með fullnægjandi hætti hvenær varan var keypt. Varan þarf að vera ónotuð, í fullkomnu lagi og í sínum upprunalegu óskemmdu umbúðum þegar henni er skilað. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Við skil á vöru er miðað við upprunalegt verð hennar, nema viðkomandi vara sé á útsölu eða á sértilboði við vöruskil. Þá er miðað við verð vörunnar þann dag sem henni er skilað. Ef kaupandi vill ekki skipta vörunni fyrir aðra vöru verður gefin út inneignarnóta eftir að varan er móttekin. Inneigninarnótan er í formi kóða sem er notaður hér á síðunni þegar verslað er og gildir í eitt ár frá útgáfudegi. Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd.

Gölluð vara

Sé vara gölluð er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og greiðum við allan sendingakostnað sem um ræðir.Eða endurgreiðum ef þess er krafist.

Að öðru leiti vísast til laga um húsgöngu og fjarsölusamninga nr.48/2003 og laga um neytendakaup.

Greiðsluleiðir

Hægt er að greiða með millifærslu í heimabanka eða gegnum örugga greiðslusíðu Valitor.
Hægt er að greiða með VISA og MASTERCARD.

Trúnaður (Öryggisskilmálar)

Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila.

Lög og varnarþing

Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjaness.

Comments are closed.